Blogg Gummalingsins
Myndasíður
02.11.2007 23:54:08 / gummi

Ég er kominn heim í heiðarvoginn

Jú jú mikið rétt, ég er kominn heim á Congo, sem er bara mjög gott, þessi skóli er nú búinn að vera helvíti fljótur að líða bara held ég, ekkert annað en glæsilegt.

Það er spurning hvað maður eigi að gera hérna, fara í ræktina á morgun, já held það bara, og hvernig ætli þessi endi síðan, kannski þunnur eins og flestar aðrar helgar sem eru liðnar af þessum vetri, kæmi ekki á óvart. :haha::haha:

En annars þá er bara að gera ekki nokkurn skapaðan hlut, nema jú auðvitað að blogga og hlusta á Johny Cash (þvílíkur snillingur) mæli með því að allir hlusti á hann svona nokkuð oft.

Síðan til að enda þetta á góðum nótum þá minni ég á Sviðamessuna sem er einmitt hér á Congo um næstu helgi, þá verður sko gaman að vera til ha, það held ég nú.

Bless

Bikko skrifaði
því miður gummi vil ég ekki lesa bloggið þitt þar sem að fyrirsögninn er ekkert nema bláköld lygi..Djúpivogur er ekki dalur....eini dalur sem þú ferð í gegnum er skriðdalur....og fagridalur ef þú ferð þá leiðinna...en þú átt ekki heima þar, þannig að það eru komnar tvær lygar í sömu fyrirsögninni. ég vildi bara benda þér á þetta vinur..þar sem að ég er vanur fréttamaður á æsifrétta síðunnu www.borgarfjordureystri.is og þekki því svona lagað. sjáumst kæri vin
karen skrifaði
þú mætir í búning á hrekkjavökuna/sviðamessuna!! og já það er pínu partý hjá mér í kvöld endilega kíktu;)
Gummi skrifaði
jæja birkir er búinn að leiðrétta þennan næstum ófyrirgefanlega misskilning, ég get fullvissað þig um það að þetta gerist ekki aftur.
systa* skrifaði
ohhh djumme þú ert frábært ..kveðja frá tvíbbunum ..sigga og systu :*
Bikko skrifaði
gummi geturðu gert mé smá greiða...geturðu bloggað um markið sem að Noel Pamarot skoraði gegn Newcastle...Natan sagði að það hefði verið gjeggað
gréta nágranni skrifaði
sæll Gummi minn, ég rakst á þessa stórskemmtilegu síðu og hafði gaman af.. ég t.d fór inn á linkinn hjá Þorbirni áfangastjóra og þótti mér hann mjög svo áhugaverður

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.