Blogg Gummalingsins
Myndasíður
29.03.2008 01:21:22 / gummi

Bless

Held ég setji þessa síðu á hausinn.

Ný síða

http://www.gussigamli.bloggar.is

Veriði sæl




» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 00:21:12 / gummi

Já ok

Kominn tími á eitt gott blogg eða svo.

Ég var að spá í eitt, ég var nefnilega að horfa á uppáhaldsþáttinn minn, á skjá einum, Ertu skarpari en skólakrakki. Þetta er án efa einhver leiðinlegasti þáttur sem gerður hefur verið, ha ég bara skil ekki hvernig fólk nennir að horfa á þetta. Svo fattaði ég eftir að hafa horft á allann þáttinn að ég hlýt að vera alveg nautheimskur, eða alla vega engann veginn skarpari en 10 ára krakkar (ég gat ekki svarað neinni einustu spurningu rétt af svona 30), það finnst mér slæmt, sérstaklega vegna þess að ég er nú vonandi að fara að útskrifast  úr menntaskóla, ég þarf sennilega að fara að taka mig á í náminu eða einfaldlega hætta að horfa á svona leiðinlega þætti og hugsa um hvað ég er heimskur (ja kannski ekki heimskur en svolítið vitlaus) og gera eitthvað af viti eins og að sofa, mér finnst ég vera góður í því. 

En þetta var nú bara svona pæling, annars er nú allt frábært að frétta af mér, alltaf nóg að gera og svona þannig að tíminn líður hratt í menntaskólanum skal ég segja ykkur.

15 dagar í Emirates stadium og læti, mikið djöfull verður þetta nú gaman ha.

 

Gummalingur kveður að sinni 


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 23:57:16 / gummi

Dagur í lífi Gummalingsins

 

Já það er allt að gerast í lífi Gummalingsins þessa dagana.8)

 

Ég má til með að segja ykkur frá þessum ágæta degi í lífi mínu, semsagt sunnudeginum 20. janúar 2008.

 

Nú hann byrjar einfaldlega þannig að ég vakna eins og svo oft áður, en það vill svo til, allavega hjá mér að dagurinn byrjar ekki nema ég vakni.

 

Svo fékk ég mér hollann og góðan morgunverð, eða Lucky Charms (þó aðallega sykurpúðana, því hitt er alveg viðurstyggilega vont.:frown:

 

Síðan eftir það er förinni heitið alla leið á Reyðarfjörð í lokahluta þjálfaranámskeiðsins magnaða. Eftir langa og ansi hreint strembna för þá kemst ég nú á áfangastað.8|

 

Þegar þangað er komið þá kemst ég að því að það er búið að fresta námskeiðinu til hádegis, jú jú allt í lagi með það, það breytir ekki miklu, en þá er það ekki búið, kl. 11:45 þá er hringt í mig og sagt að það verði ekkert námskeið, þennan dagin. Og þar sem það er svo brjálað veður, kemst ég ekki aftur í Egs. Þannig að ég sit fastur á Reyðarfirði til 3. :haha:

 Þannig að geta sofið til 3 þá vaknaði ég eldsnemma og eyddi deginum í ekkert, nema jú það að éta kleinur á Olís, misgóðar þó, en ég vil þakka Grétu fyrir kleinurnar (Ég mæli eindregið með því að þegar fólk kaupir kleinur að kaupa Ömmukleinur, ekkert annað;). Svo þegar ég komst aftur í Egs. þá gerði ég ekkert, nema það að horfa á landsleikinn sem var alveg glataður. Þetta var nú svona smá lýsing á góðum degi hjá Gummalingnum.Bless

» 6 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 21:24:42 / gummi

Já og nú jæja

Hvað segið þið þá, ég segi nefnilega allt fínt bara.

Þessi helgi er nú búin að vera nokkuð fljót að líða, þó að það sé nú bara sunnudagur á morgun. Þjálfaranámskeiðið verður þó sem betur fer búið á morgun, það verður nú gaman.

Annars er auðvitað ekkert annað að frétta af mér nema jú það að ég er rotna hérna á vistinni en þó er opið inni í tölvustofu eins og þú lesandi góður kannski fattaðir, (en ég skal útskýra það fyrir ykkur sem ekki föttuðuð, en jú sjáiði til, ef tölvuverið hefði ekki verið opið þá hefði ég ekki skrifað þennan ágæta pistil, og væri sennilega dáinn8| úr leiðindum.

Þakkiði því þeim sem læsti ekki tölvuverinu fyrir það að þið sjáið mig aftur eins fallegur 8)og skemmtilegur:haha::haha: ég nú er.

 

Gummalingur kveður að sinni. Bless


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 23:17:35 / gummi

Kæra Dagbók

Mér leiðist alveg hrikalega mikið.

Í þessum skrifuðu orðum sit ég hér í tölvustofunni á heimavist Menntaskólans á Egilsstöðum og er í póker á netinu með honum Kristjáni Geir, ástæða þess að ég sit hér í tölvuverinu er sú að ég tel mjög líklegt að tölvan mín sé hrunin, allavega gerist ekki neitt þegar ég kveiki á henni sem er gott sko. (nei, þetta var nú kaldhæðni ef þú sem lest þetta blogg skilur hvað það orð þýðir)8|. Annars þá er ósköp lítið að frétta nema það að Ísland tapaði fyrir Svíum í handbolta sem er slæmt, (þetta var ekki kaldhæðni). Og já svo það að ég er mjög líklega að fara að drepast úr leiðindum um helgina því ég er að fara á þjálfara námskeið á Reyðarfjörð og það mun taka alla helgina helgina, Jess:haha:. (Þetta var kaldhæðni). Og þar sem ég er ekki með neina fartölvu þá verður þetta sennilega ein leiðinlegasta helgi lífs míns, (fyrir utan þá þegar ég var veikur eina helgina árið 97 það var skelfilegt alveg.:(:(

En annars þá kveð ég að sinni, og mæti hress og kátur í skólann á mánudaginn kemur.

 

Bless


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 22:32:25 / gummi

...............................................................................................................................

.........................................................................................................................................

.........................................................................................................................................

.........................................................................................................................................

.........................................................................................................................................

.........................................................................................................................................

.........................................................................................................................................

.........................................................................................................................................

.........................................................................................................................................

.........................................................................................................................................

..................................................................................................................................Halló


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 22:22:38 / gummi

Já hæ

Jæja nú er annað blogg, gífurlegur dugnaður í drengnum.

Það er ekkert að frétta af mér síðan í gær, nema jú kannski að ég fór í skólann og fékk mér síðan að borða, (það er svona eiginlega það eina sem ég geri hérna nú orðið;) jú síðan þá var ég að horfa á Arsenal gera jafntefli við Tottenham rétt áðan, sem minnir mig á það að það eru rétt rúmir 30 dagar þangað kjellinn skellir sér til London og á Emirates Stadium, þvílík snilld.

Það er nú svona eiginlega eina tilhlökkunarefnið núna fyrir utan það auðvitað að ég er að fara að útskrifast í vor, ég er nefnilega svo duglegur að læra krakkar mínir, þannig að endilega takið þið ykkur mig til fyrirmyndar og verið alltaf þæg og lærið vel og mikið eins og ég, þá gengur allt svo miklu betur.:haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha:

Já en annars þá kveð ég að sinni, sjáumst vonandi hress og kát einhvern tímann

Bless


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 17:58:00 / gummi

Já fínt

Já Sæll

 

Já nú er ég pirraður, ég var búinn að skrifa sennilega mitt allra lengsta blogg á mínum bloggferli en hvað haldiði að gerist, Jú mikið rétt það datt allt út.

En þar sem ég er nú mjög þolinmóður maður (og hef ekkert annað að gera þá blogga ég nú bara aftur.)

Jæja nú er komið að bloggi enn og aftur, djöfull er ég duglegur, sjitt.

Nei nú er ég að ljúga, ég hef ekkert nennt að blogga, en hvernig stendur á því að fólk nennir að kíkja á síðuna ha, þetta er ótrúlegt en ég þakka þó fyrir og mér hlýnar um hjartarætur að sjá hvað ég á marga vini sem hugsa svona vel til mín, takk fyrir.

En þá að öllu alvarlegri hlutum, ég er kominn aftur í Menntaskólann á Egilsstöðum og það er sko gaman, NIIII. Þetta er 8 og vonandi síðasta önninn í skólanum, hann er að verða búinn, já fínt, en hvað um það ég veit bara ekkert hvað ég ætla að gera í framtíðinni og þið sem lesið þetta endilega komið með einhverjar hugmyndir að námi eða starfi fyrir mig í commentunum hér að neðan, það væri alveg hreint frábært.

Nú sit ég hér (eða ligg öllu heldur einn í mínu herbergi í þungum þönkum og hlusta á tvíhöfða, alveg merkilegt hvað þetta eru fyndnir andskotar þessir menn ha.)  

Já nú nenni ég ekki að skrifa meira

 

Bless


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 21:09:23 / gummi

Hnja

Já gott fólk, nú blogga ég mitt annað blogg á jafn mörgum dögum, djöfull er ég góður.

Ein helsta ástæðan fyrir því að ég blogga eða nei eina ástæðan fyrir þessu bloggi er sú að ég á að vera að læra en ég er bara svo mikill helvítis sauður :haha: að ég bara nenni því engann veginn og þeir sem vilja aðstoða mig í því, endilega.

Ég er nú bara ótrúlega ánægður að sjá hvað margir nenna einfaldlega að eyða tíma sínum í að skoða þessa síðu mína, er mjög stoltur. Takk fyrir, þessu gleymi ég seint (samt svo ekki því ég man ekki neitt) Ég held nefnilega að ég sé bara að fá alzheimers eða einvhern andskotann því ég man ekki neitt, sem er ekki nógu gott því það kemur þokkalega oft fyrir að ég mæti í skólann voða hress og bí mig undir það að glósa eitthvað en nei þá kemst ég að því að það er próf sem ég auðvitað er ekki búinn að læra neitt fyrir.

Það er voðalega gaman að líta út eins og fáviti en ég er reyndar orðinn vanur því, því ég er ekkert annað en fífl.:o:o

Bless

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 15:12:49 / gummi

Það er ekkert annað

Ætli maður verði nú ekki að vera duglegri að blogga, maður er bara kallaður fífl og læti, ég er mjög sár núna Kristján ég vil ekki sjá svona á minni síðu.

Nei en annars þá styttist óðum í 1. des samt verður það ekki 1. des heldur á föstudaginn 23 nóvember, pæliði í því, en það verður nú gaman vona ég.

Ætli maður endi nú ekki bara hress á balli eins og venjulega, það held ég nú.

Svo fer nú þessi önnin að verða búin og jólafríið að byrja, 11. des, mikið djöfull verður það nú gott.

Kuldinn er nú farinn að segja heldur betur til sín og það munar nú ekki miklu að maður drepist nú bara úr kulda, samt ætla ég nú að vona ekki en maður veit aldrei.

En nú ætla ég að fara að leggja mig og ég blogga nú meira seinna og verð duglegur þið megið treysta því. Samt ekki


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 13:48:24 / gummi

Já sæll

Hér sit ég í þungum þönkum í herbergi mínu á vistinni á Egilsstöðum og er að reyna að finna mér eitthvað að gera, veit ekki alveg hvað það ætti að vera en ég er nú svo hugmyndaríkur og skemmtilegur maður að ég hlýt að finna mér eitthvað.

Það er alveg skítakuldi hérna þannig að það er alltaf jafngaman að hlæja að reykingafólkinu sem hangir alltaf úti alveg að drepast úr kulda Þau eru fífl.

En ég vil enn og aftur minna á Sviðamessuna á Djúpavogi um helgina, hvet sem flesta til að mæta, helst skemmtilega fólkið nenni ekki að fá hina.

Ég eiginlega hef ekki hugmynd um það af hverju ég var að byrja að blogga aftur, því þetta er alveg gjörsamlega ömurlega leiðinlegt en ég læt mig nú hafa það, því líf mitt er svo spennandi að ég verð bara að deila þessum skemmtilegu sögum af mér með ykkur.

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

02.11.2007 23:54:08 / gummi

Ég er kominn heim í heiðarvoginn

Jú jú mikið rétt, ég er kominn heim á Congo, sem er bara mjög gott, þessi skóli er nú búinn að vera helvíti fljótur að líða bara held ég, ekkert annað en glæsilegt.

Það er spurning hvað maður eigi að gera hérna, fara í ræktina á morgun, já held það bara, og hvernig ætli þessi endi síðan, kannski þunnur eins og flestar aðrar helgar sem eru liðnar af þessum vetri, kæmi ekki á óvart. :haha::haha:

En annars þá er bara að gera ekki nokkurn skapaðan hlut, nema jú auðvitað að blogga og hlusta á Johny Cash (þvílíkur snillingur) mæli með því að allir hlusti á hann svona nokkuð oft.

Síðan til að enda þetta á góðum nótum þá minni ég á Sviðamessuna sem er einmitt hér á Congo um næstu helgi, þá verður sko gaman að vera til ha, það held ég nú.

Bless


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 23:51:34 / gummi

Já já já Gummalingur mættur aftur

Eins og þið kannski lásuð í fyrirsögninni, þá er kjellinn mættur aftur, ég ákvað að dusta rykið af þessari kengimögnuðu síðu til þess að nota í neyðartilfellum ef ég er alveg að deyja úr leiðindum eins og núna, ég ætla nú bara að blogga svona þegar ég nenni og man eftir en ég vona nú að það verði oftar heldur en ég hef gert hingað til, svo þið getið fylgst með mögnuðu lífi fallegasta manns í heimi, þá er ég að tala um mig Gummalinginn sjálfan.

 Það er nákvæmlega ekkert að frétta af mér, annað en eitthvað gott, er alveg þvílíkt duglegur að læra og er alveg að brillera í skólanum8).

En annars þá nenni ég ekki að blogga meira, geri meira seinna, er búinn að vera svo duglegur núna.

Gummi kveður


» 11 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 22:24:25 / gummi

Rabison trabis

Yes Rabison trabis, bunderkup.

Nii bara að djóka, lærði þetta í fóstbræðrum, þetta er svo fyndið :haha::haha::haha: já ahahahahaha

Það er annars allt gott að frétta af mér.

Er löngu byrjaður í þessum geggjaða skóla sem Menntaskólinn á Egilsstöðum er, held að allir séu sammála mér í þessu. :$:$. Það er alla vega stuð í Landafræði hjá mér þar sem ég er í fjarkennslu, í þessum fokking áfanga þar sem kennarinn er á Hornafirði og maður þarf að horfa á einhvern andskotans skjá til að sjá og heyra í manninnum.8|8|.

Svo er nú alltaf sama skítaveðrið á þessum skítastað sem Egilstaðir eru :klikk: nei nei þetta er fínn staður en það er alveg bullandi snjókoma hérna núna og læti maður.

Núna nenni ég ekki að skrifa meira, en vill benda öllum á að fara á Youtube.com og skrifa Fóstbræður í leit og horfa á þessi mögnuðu atriði.

  


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 11:02:44 / gummi

ohhhhhhhhh

Er í íslensku núna og ég var að fá að vita það að það er próf á fimmtudaginn:evil::evil::evil::evil::evil::evil::evil: andskotinn þannig að ég er ekki mikið að fara til Reykjavíkur. Djöfulsins helvítis.

Bless


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3